Próf og aftur prófGuđný Harđardóttir

Fyrsta prófið á morgun. Efnafræði. úff. hugsið vel til mín!!!
Síðustu dagar hafa sem sagt bara farið í lærdóm hjá mér, meira en nóg að gera. Hef samt haft það af að klára jólagjafa innkaupin. :) nú er bara að byrja að pakka inn.
Síðasta prófið hjá mér er 19.des og áætlunin er að bruna beinustu leið austur. Maður er að vera kominn með heimþrá. Það verður yndislegt að komast austur í jólafrí. Það liggur við að maður telji klukkustundirnar þangað til. Maður er samt óneitanlega farin að elska það að vera hér. Maður mun fara héðan með smá sorg, en huggar sig við það að maður kemur hingað eftur eftir áramót. Það er svo æðislegt hérna og aldrei á ævinni hefur mér liðið svona vel. Hef ALDREI geta verið jafn mikið ég sjálf og núna. Asnalegt að segja þetta en svona er þetta, hérna er manni tekið eins sveitalegum og maður er. :)
Bráðum koma blessuð jólin!!
Yfir og út
~Guðný~

PúffGuđný Harđardóttir

Þá er þessi helgi búin. Það var bærilega tekið á því. Drukkið fimmtudagskvöld, föstudagskvöld og laugardagskvöldið.
Árshátíðin heppnaðist bara ágætlega fyrir utan það að viið fengum ekki matinn fyrr en rúmlega hálf tíu, og okkar borð var með þeim síðustu og ég get ekki sagt að maturinn hafi verið mjög heitur þá, hinir fundu ekkert fyrir því sökum ölvunar en ég var svo nett á henni þarna vegna kvöldsins áður en þá voru þónokkur tópasskot innbyrgt og kvöldið allt í móðu... Man þó eftir því að hafa þuklað hrútinn sem var verið að bjóða upp. Hef nú þuklað þá betri en það hamlaði því samt ekki að maður keypti sér hlut í honum, því skot fylgdi hverjum hlut.
Læt þetta gott heita núna, nenni ekki að rifja meira upp eftir þessa helgi sem var samt sem áður mjög góð!
Kv. Guðný

RúningsmeistariGuđný Harđardóttir

Helginni var eytt í eitt snilldar rúningsnámskeið! Skemmti mér konunglega að berjast við rollurnar og rýja þær, enda var kennarinn, hann Guðmundur Hallgrímsson algjör snillingur. Sjaldan sem maður kallar kennarann sinn asna og segir hvað sem manni sýnist við hann. Vitleysingur en kann að kenna, óvenjuleg blanda. Ég held að ég ætti alveg að geta rúið einar 50 á dag. Gef mig út fyrir það allavega til að byrja með ;)
Ég er mjög slöpp í dag, blá og marin eftir rúininginn, með hálsbólgu og stút fullan haus af kvefi. Beilaði á Boot camp í morgun, hefði örugglega dáið bara. Er að reyna að meika að sitja Efnafræði tíma núna. Gengur það vel að ég sit hér og blogga aðeins.
Hef það ekki lengra í bili, gaman að sjá að það eru alltaf fleiri og fleiri að kíkja á þessa síðu :D Minni samt á að kvitta!
Kv. Rúningsmeistari

Árshátíđ 17.nóvGuđný Harđardóttir

Já fínt já sæll!
Ég er bara komin á kaf í árshátíðar undirbúning. Var fengin með í nefndina og ég ásamt fleirum er að fara að sjá um skreytingar :) Þetta verður ein glæsilegasta skreytta árshátíð skólans. hehehe
Enn fjölgar í Boot camp hópnum okkar. Auðna mætti á fimmtudaginn og enn ein kom inn á mánudaginn.
Tóti gerir ekki annað en að vinna núna. Er að vinna að staðaladri til 9 eða 10 á kvöldin. Það liggur við að ég sakni hans meira en þegar hann var fyrir austan :(
En þetta gengur yfir.

Það styttist í jólin!! JEJJ :)

Er ég kem hmm hmmh í BúđardalGuđný Harđardóttir

Það var Haustfagnaður sauðfjárbænda í Dölunum á laugardaginn og haldið var á ball þangað. Ég var að keyra, Tóti, Gunni félagi hans var með og tók hann með sér vinnukonuna sína og vin sinn. Þetta var snilldar ball. Ég dansaði svo mikið að ég vaknaði með grjót í stað kálfa daginn eftir. Þetta var þannig ball að maður fór ekki út á gólfið nema í fylgd með herra og buðu margir mér upp :) Algjör snilld! Ótrúlegt samt hvað mönnum er misgefið að dansa! heheh

Af karókíinu er lítið að frétta annað en það að Tóti og félagi hans þorðu ekki að keppa. Auðna stóð sig aftur á móti með prýði. Samt náði hún ekki sæti sem mjög margir voru ósáttir með.

Ég fór í boot camp aftur í morgun. Afhverju er enginn búinn að gefa mér asic's hlaupaskó?!?!? Ég get viðurkennt það að ég var frekar þreytt í efnafræði áðan. En maður hristir það bara af sér. Verst var samt að ég er ennþá með harðsperrur síðan síðasta, fann alveg ofboðslega fyrir þeim þegar ég var að gera æfingarnar. Púff

Ein með strengi!

Önnur einkunn 7,5Guđný Harđardóttir

Vaknaði 5:50 í morgun til að fara í Boot camp með nokkrum stelpum hérna. :) Hressandi!! Við erum s.s að fara eftir Boot camp æfinaprógramminu en enginn öskur. Hver og einn er bara að gera þetta á sínum forsendum. Og SHIT!!! Mínar forsendur eru sko að fá eitthvað þol! Það er ZERO núna. Get ekki einu sinni skokkað kílómeter! En það verður gerð bót á því ;) Þarf samt að eignast betri skó. Níu ára eróbikk skórnir eru úr sér gengir og ég það eina sem þeir gera fyrir mig er að gefa mér BLÖÐRUR! :S
Óska hér með fjárveitingu í hlaupaskó ;)
Ég er orðin vangefin á þessu roki og rigningu! Það er búið að vera svona í fjóra daga. Maður lét sig samt hafa það í morgun. Hressandi!
Í kvöld er karíókí keppni á barnum. Tóti segist ætla að keppa með vinnufélaga sínum. Við Auðna vorum samt að pæla í því hvort þetta væri ekki einungis fyrir skólan. En það kemur í ljós. Vonandi fá þeir að keppa, því það yrði stórkostlegt að sjá!!! :)

Segi næst frá karókíinu!
Kveðja Guðný

Fyrsta einkunn 8,1Guđný Harđardóttir

Núna er maður kominn aftur á skólabekk eftir 6 daga frí. Ég fór austur og átti góða daga á Refsmýri. Tóti kom svo á föstudagskvöldið og við fórum saman suður í gær. Suðurleiðina!!! Við vorum alveg að verða vangefinn á leiðinni. KEYRA KEYRA KEYRA! Við lóguðum kindum á Refsmýri og einum hrút. Hrúturinn gafst ekki svo auðveldlega upp og þurfti ekki annað en að elta hann út á tún eftir fyrsta skotið og bæta svo fimm við!!! Fjör í sveitinni!! Hlæjandi
Ekki nóg með það að við Tóti keyrðum suður í gær heldur kíktum við á Borgarfjörð á Gilsárvelli áður. Við þurftum að  kíkja á grísinni þar. Þorvaldur Jón hefur stækkað um helming síðan ég sá hann síðast.

Nú ætla ég að fylgjast með í efnafræði. Ég þarf að kaupa rándýra bók Gráta

Kveðja Guðný

Fyrsta lokaprófiđGuđný Harđardóttir

Fyrsta lokaprófið  var í dag. Mér gekk nú barasta þokkalega. Enda er ég búin að liggja yfir bókunum í tvo daga. Rétt leit upp úr þeim til að fá mér í svanginn. Næsta próf er á föstudaginn. Nenni ekki að fara að læra undir það alveg strax.

Tóti er með æluna!!
Lítið gaman af því!

er farin að gera eitthvað sniðugt
Kv. Guðný

ÉG fór út ađ SKOKKA!!!Guđný Harđardóttir

Ég, hún Guðný Harðardóttir!, fór út að skokka með skokkhópnum hérna í gær! Ég hélt ég myndi deyja! en skokkaði samt 3 km! Var ráðlagt að kaupa mér betri skó. Ekki hentugt að skokka á 5 ára gömlum eróbik skóm! Þannig ég er að fara að kaupa mér hlaupaskó! Ég! Því nú ætla ég að koma mér í form!

Fyrsti vinnudagurinn var hjá Þórarni í gær. Honum líkaði bara vel.

Kveð í bili, ætla að fara í göngutúr og losa um mjólkursýrurnar Glottandi

Göngur og RIGNINGGuđný Harđardóttir

Sælt veri fólkið.
Helgin fyrir austan var æðisleg. Það var meiriháttar að fara í göngur og réttir, þó að réttirnar væru í slagveðursrigningu, en maður er svo sem vanur henni hérna fyrir vestan. Veðrið á laugardaginn hefði ekki geta verið betra til göngu. Hápunkturinn var þegar Þorsteinn Kaupi nágranni reyndi að smala hreindýrum með rollunum!!! Ekki alveg að gera sig!!!

Aksturinn til baka vestur gekk mjög vel þó að ekki væri lagt í hann fyrr en kl. 15. Smá hálkuklessur á Möðrudalsöræfunum.

Þórarinn er að koma á morgun Hlæjandi Byrjar svo að vinna á mánudaginn.

Kveð í bili.
Guðný

Ađalvalmynd

Auglýsing

Leit

Textareitur

Ţjóđ veit ţá ţrír vita!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...